Vatnalilja í kjallaranum, þessi kom frá Garðari Guðmundssyni sem lítil lilja, eins og ég er oft með til sölu í kjallaranum, hvíta örin bendir á stilkinn sem kom með blóm og er hann talsverð þykkari en stilkarnir sem senda laufblöð upp
Hér er lauf að opnast ofaní vatninu, en þau verða miklu stærri þau sem send eru upp á yfirborðið, en ef koltvísýringur er settur í vatnið verða blöðin stærri og fallegri ofan í vatninu
Hér sést að blöðin ofaná vatninu eru 3-4 sinnum stærri en þau sem eru ofan í vatninu enda miklu meiri koltvísýringur í lofti heldur en vatni
Og hér er svo þetta myndalega blóm sem kom upp á örfáum dögum en því miður er þeirra líftími frekar stuttur svo um að gera að njóta á meðan færi gefst