Þessi tegund kemur frá Kúbu og kosta rica þar sem hann finnst í litlum lækjum og vötnum þeir eru líka í hálfsöltu vatni svo best er að halda sýrustigi háu eða setja smá salt í búrið Þetta er hængur eins og sést á óvenjulega löngum pindli, innfelda myndir sýnir vel svarta litinn sem liggur frá pindli upp að munni
Hrygnan er litlítil en svartur flekkur er á bakugga sem hindrar að henni sé ruglað saman við guppy hrygnu Hrygnan verður 4-6 cm en hængurinn 3-4 cm hrygnan eignast lifandi afkvæmi á um 4 vikna fresti ef aðstæður eru hentugar, og eins og með flest allar tegundir gotfiska er best að hafa þéttan gróður svo seiðin komist undan gráðugum fiskum