Hrygna með seiði þessi tegund finnst í Miðbaugs-Gíneu og Kongó í vestur-afríku
Hængur með seiði Stærðin gefin upp 10 cm en þessi hængur var nær 8 cm
Þetta eru sömu fiskar og hér fyrir ofan, þarna er ég nýbúinn að fá þá sem ungfiska og voru litirnir í takt við það, þegar þeir stækkuðu þá pöruðust þeir og fóru að hrygna án þess að ég gerði mikið fyrir þá sem er algengt með margar tegundir af Rubricatochromis
Þetta er hængurinn fyrir ofan í allt öðrum litbúningi 22-26c er fínn hiti þótt þeir hafi hrygnt í aðeins kaldara hjá mér
Parið með seiði, hængurinn var mjög stressaður og sýndi allt öðruvísi liti en hann var vanur, en það sést vel á honum á öllum þessum myndum hversu ólíkur hann getur verið og er það eins með margar síkliður og er það oftast ekki til að einfalda tegunda greiningu