Erythrolamprus poecilogyrus

Þessi fallegi E. poecilogyrus var við veginn svo einfalt var að sjá hann, stoppa bílinn og ná honum til að taka myndir, um leið og snákar komast í gróðurinn hverfa þeir alveg og því ekki hægt að taka myndir

Eins og alltaf þegar um snáka er að ræða sem, ég þekki ekki þá bíð ég eftir heimamanni til að segja mér hvort óhætt sé að taka hann upp
Hér er hann í Úrúgvæ en þessi tegund finnst víða um suður-ameríku

Falleg tegund, þessi er líklegast kvendýr miðað við stærð, þar sem þær eiga að verða lengri en karldýrið
