800 ltr fiskabúr

uppsett búr 800 ltr grindavik

Gömul uppsetning frá mér, ég setti stein það stóran ofan í þetta 60 cm háa búr að hann stóð uppúr en flottur er hann þarna og gefur búrinu aukna dýpt.
Stæðilegur Vieja hængur sem stjórnaði búrinu var um 30 cm

uppsett búr 800 ltr grindavik

Pússningarsandur á botninum ásamt greinum gerðu búrið skemmtilegt þótt þessar myndir séu teknar í kring um vatnsskifti svo búrið er hálf skýjað,
Vieja maculicauda og til vinstri Jack Dempsey ( Rocio octofasciata )
Gíraffa kattfiskur ( A. occidentalis ) á miðjum botni sem verður um 70 cm langur og er ekki skynsamur kostur í fiskabúr þótt ég hafi fengið nokkra gefins í gegn um árin og hinir tveir kattfiskar eru Synodontis decorus

uppsett búr 800 ltr grindavik

Þessar rætur eru allar íslenskar og fann ég þær hingað og þangað, ef ég set íslenskar rætur í búr þá þurfa þær að vera búnar að liggja lengi úti og missa börkin svo ekki sé mikil hætta á að þær séu að missa einhver óþarfa efni út í vatnið, en auðvitað leysast þær upp með tíð og tíma eins og aðrar rætur og henta því best í búr með fiskum sem vilja mýkra vatn