Pseudotropheus acei

Ein friðsamasta Mbuna sem er í boði, geta orðið um 18 cm, hængurinn með oddhvassa ugga en annars eru kynin mjög lík 

Hrygnan er með rúnaðan bak og gotraufarugga eins og flestar hrygnur frá Malawi vatni, þetta er ein þægilegasta tegundin til að setja slatta af í mbuna búrið bæði þar sem þær vilja vera margar saman og einnig til að minnka líkur á að aðrar tegundir geti eignað sér búrið.

Um 150 seiði undan stórri hrygnu sem mældist 16 cm með sporði, lang mesti fjöldi af seiðum sem ég hef séð frá Malawi síkliðu, Í náttúrunni eignast hrygnur miklu færri seiði en stærri enda er það mikilvægt að seiðin séu stór og sterk til að bjarga sér í villtri náttúru, en í búrum koma eftir nokkrar kynslóðir minni og fleiri seiði 

Twitter
Youtube
Scroll to Top