Hængur af þessari tegund eins og sést á virðulegum pindli undir honum sem er um það bil 1/3 af hans stærð Þessi tegund finnst í sunnanlega í Brasilíu, Úrúgvæ , norður Argentínu og upp til Paragvæ
Hér eru 3 hrygnur og eins og hængurinn fyrir ofan eru þau doppótt sem er það form sem fólk vill í fiskabúr en oftast er fiskurinn aðeins með eina doppu í náttúrunni
Þessa hrygnu veiddi ég í Sarandí í Úrúgvæ um 5 cm á innfelldu myndinni sést önnur hrygna í búri og þar sést betur blái liturinn sem er í kring um svörtu doppuna en bæði doppan og blái liturinn er misjafn eftir veiðistöðum
Villtur hængur frá Sarandí og á innfelldu mynd er ræktaður hængur í fiskabúri, hængarnir eru um helmingi minni en hrygnurnar þar sem þessi tegund finnst sunnanlega í suður-ameríku þá þola þeir bæði lágan og háan hita eða 10-30c
Þessi litli skurður gaf vel af ýmsum fiskum og þar með talið þessa Phalloceros caudimaculatus hér fyrir ofan, hægt rennsli og mikill gróður er það sem þessir fiskar leita í og er alltaf gott að líka eftir náttúrulegum heimkynnum til að fiskunum líði sem best